fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Fyrsta blogg á nýjum stað

Mér líkar vel við svona bloggsíður, enda get ég þar tjáð mig í orðum rituðum niður af fingrum mínum og það líkar mér.
Ég á alveg eftir að skoða þetta blogger kerfi, en ég ætla að hafa þetta betra en annað sem ég hef gert á netinu. Þetta verðum minn miðill og því mun ég vanda vel það sem ég set niður. Þetta þykir einhverjum líklegast lummó, sama aðila þykir orðið lummó væntanlega einnig hallærislegt, en þeim, sem og öðrum ráðlegg ég að lesa færslurnar vandlega og reglulega og ræða málin í kjölfarið á síðunni.

Takk og bless
Lalli

2 ummæli:

Óli Sindri sagði...

Mér líst mun betur á þennan stað. Hér ætla ég að koma mér fyrir í rökkvuðu horni og fylgjast með ævintýrum Lárusar í Vínarborg.

larush sagði...

þakka þér fyrir óli minn