föstudagur, september 09, 2005

víkingurinn virtist villtur, eða hvað?

Jújú kæru vinir ég er á leiðinni í burtu af landinu, flýg á miðvikudaginn út til heitu landanna þar sem sólin skín og smjör drýpur af pálmatrjám en ekki stráum.
Það verður nú aldeilis hressandi og gefandi tími, hversu langur sem hann nú verður og hvað ég tek mér fyrir hendur á meðan hann líður. En best af öllu er fyrir ykkur er að vita, okkar fólk er ávallt velkomið í Ölwiengasse 4, bara hringja á undan sér til að öruggt sé að nóg sé til af öllu.

Næst skrifa ég frá Vínarborg...
lalli

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gvöð og almáttugur í Vínarborg!

Farið á Leopold museum og skoðið verkin hans Klimt. Farið í picknick í Volksgarden, í sund í Dóná og borðið á Friday's þegar Vínarsnitzelið verður yfirþyrmandi...verð með ykkur í anda og góða skemmtun:)

Lilja